Mánudagur, 21. júlí 2008
Nautakjöt, steikt medium-rare, er undirstaða alls árangurs, ef ekki bara alls lífs. Þetta vita þeir sem hafa þurft að berjast fyrir sínu í lífinu og lent í raunverulegum hremmingum. Hrafn vinur minn Jökulsson er mjög meðvitaður um þessa staðreynd enda feykivel að sér í sögu hernaðar og seinni heimsstyrjaldarinnar. Þegar ég brotlendi í lífinu, sem gerist með leiðinlega jöfnu millibili, fer Hrafn sjálfkrafa á sjálfsmorðsvaktina og hringir reglulega til þess að athuga hvort ég sé byrjaður að bisa við hengingarhnútinn. Og skipa mér að borða nautakjöt reglulega.
Tilgangur lífsins
Laugardagur, 19. júlí 2008
Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega að leita að tilgangi lífsins enda staðið nokkuð fast á því að hann sé enginn. Þrátt fyrir að eiga þrjú yndisleg börn hef ég ekki getað fallist á það að tilgangurinn sé fólginn í því að viðhalda mannkyninu enda er það gráðugt og umhvefisfjandsamlegt og ekkert sérstaklega lífvænlegt sem heild.
» meira
Eldgamalt skúbb
Laugardagur, 12. júlí 2008
Gamli Moggaritstjórinn Matthías Johannessen skammar Reyni Traustason, Jónas Kristjánsson og Svarthöfða á vef sínum fyrir að halda endalaust á lífi sögu um að ríkislögreglustjórinn hafi hótað kaypsýslumanni lífláti á Vínbarnum fyrir margt löngu.
» meira
Ýmist í nýra eða eyra
Föstudagur, 11. júlí 2008
Hremmingar Sirrýar, með eyrað í sundur, á spænskum einkaspítala minntu mig á sjúkrahúsbrölt mitt á Krít fyrir einhverjum 2-3 árum. Á meðan á því kvalræði stóð hélt ég að þetta yrði mitt síðasta en eftir á er þetta dýrmæt lífsreynsla sem mér þykir ósköp vænt um.
» meira